Nú sit ég í góða veðrinu fyrir austan og engan djass hér!

Ég sit hér á svölunum heima hjá mér og hlusta á tónlist.  Ekki á Larry Carlton eða Beady Belle eins og venjulega heldur á screaming metal frá hljómsveit sem er að æfa hér rétt hjá.  Þessir sveppir eru væntanlega að æfa fyrir Eistnaflugið og eru bara að verða nokkuð þéttir!  Ég hef nú verið eitthvað viðloðandi þetta merkilega metal festival amk tvisvar og þó að þessi tónlist sé svona frekar langt frá þungarokkinu sem ég hlustaði á og spilaði á sínum tíma þá hafði ég gaman að því að vera á Eistnafluginu.  Þetta eru mjög trúir hlustendur og mæta á tónleika sama hvað ..... vá nú sleit söngvarinn eitthvað!!!? Þeir eru hættir.

Djassinn hefur svipað orð á sér og þungarokk.  Sumum finnst þetta hljóma eins og þvottavél að vinda og rokkið vera fyrir villinga og djassinn fyrir hámenntaða spekulanta og spreng-lærða tónlistarmenn.  Að sjálfsögðu er til leiðinlegur djass og leiðinlegt rokk.  Það er meira að segja til ekkert mjög svo gott súkkulaði!  (Þeir eru byrjaðir aftur) Stundum færast menn á milli þessara tónlistarstefna og hér er gott dæmi:  Gamli Testament gítarleikarinn Alex Skolnick færði sig yfir í djassinn og gaf út plötu með gömlum þekktum rokk standördum í djassútsettningum.  Þekkið þið lagið?

 

www.jea.is

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

War pig, Black Sabbath? Stemmir það?

viðar (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 09:48

2 Smámynd: JEA

Já Sabbath var það Viðar.  Það vantar nú kannski smá pung í þetta hjá þeim er það ekki?

JEA, 18.6.2008 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jazzhátið Egilsstaða á Austurlandi 25-28 júní 2008.

Höfundur

JEA
JEA
Elsta jazzhátíð Íslands og er 20. ára í ár. Á hátíðinni er líka bara skemmtileg tónlist!

Nýjustu myndböndin

Beady Belle Loose and Win

Bara skemmtileg tónlist

Beady Belle ásamt India.Arie - Self-Fulfilling

Nýjustu myndir

  • 2509 JEA
  • picture 8 537524
  • Bloodgroup1
  • Bloodgroup
  • Laurie Wheeler
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 32358

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband