Engin hátíð eins og JEA!!!

Þegar maður er að skipuleggja svona hátíð þá skoðar maður að sjálfsögðu aðrar hátíðir sem flestar eru stærri og eiga auðveldara með að fá til sín stór númer sökum staðsettningar.  Ég hef þó tekið eftir því að mjög margir sem við höfum samband við eru áhugasamir um að koma enda höfum við uppá að bjóða það sem engin hátíð í heiminum hefur uppá að bjóða en það er þessi frábæra náttúra okkar.  Einnig höfum við frábæra staði sem eru jú manngerðir(tónlistin er það nú líka) eins og þann sem opnunarhátíðin fer fram í. 

Aðkomugöng stöðvarhúss Fjótsdalsvirkjunnar er staðurinn og þar verður flutt glænýtt dans- og tónverk eftir Einar Braga(tónlist) og Irmu Gunnarsdóttur(dans) djúpt inni í risastóru fjalli!  Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að svona nokkuð hefur aldrei verið gert á jazzhátíð nokkurstaðar í heiminum.   Ég veit að það er hættulegt að koma með svona fullyrðingar en laggó eins og skipstjórarnir segja.  Tónlistarhátíðir heimsins fara nefnilega fram í risastórum leikvöngum og í miðjum stórborgum og litlum bæjum að sjálfsögðu og í litlum húsum en ég hef ekki rekist á svona nokkuð.  Látið mig vita ef þið vitið af einhverju sambærilegu! 

Draumar/Dreams heitir verkið og samnefndur diskur kom út í vikunni með tónlistinni úr verkinu ásamt nokkrum auka lögum eftir Einar Braga.  Á disknum leika margir frábærir tónlistarmenn auk Einars Braga eins og Gulli Briem, Jói Ásmunds, Óli Scheving og tveir kunningjar okkar frá Noregi ásamt fleirum.  Dansararnir sem munu dansa þetta verk hafa unnið hörðum höndum að því að fullkomna danshluta verksins og þegar ég sá æfingu í aðkomugöngunum fyrir nokkrum vikum þá áttaði ég mig fyrst á því hversu magnaður viðburður þetta verður!

www.jea.is

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Magnað, ég mæti.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 8.6.2008 kl. 18:33

2 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

það mæta allir viti bornir menn

Einar Bragi Bragason., 9.6.2008 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jazzhátið Egilsstaða á Austurlandi 25-28 júní 2008.

Höfundur

JEA
JEA
Elsta jazzhátíð Íslands og er 20. ára í ár. Á hátíðinni er líka bara skemmtileg tónlist!

Nýjustu myndböndin

Beady Belle Loose and Win

Bara skemmtileg tónlist

Beady Belle ásamt India.Arie - Self-Fulfilling

Nýjustu myndir

  • 2509 JEA
  • picture 8 537524
  • Bloodgroup1
  • Bloodgroup
  • Laurie Wheeler
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 32420

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband